Þinn tími...

...er kominn Jóhanna og fjölskyldur þessa lands bíða enn eftir "SKJALDBORGINNI" sem slá átti utan um þær!

Þann 29. janúar s.l. benti ég líka á þá staðreynd að þinn tími væri kominn Jóhanna en síðan þá hef ég EKKERT séð grynnka á skuldum mínum né minna nánustu!  Þær hafa frekar hækkað, ALLAR, ef eitthvað er!! 

Ég hef EKKERT séð gerast í því að koma böndum á þá sem sigldu hér allt í kaf!  Þar hefur frekar borið á því að fleiri fréttir berist af sukki og svínaríi sbr. arðgreiðslur þær sem stjórn HB Granda huggðist greiða eigendum sínum, vegna frábærrar stöðu fyrirtækisins, rétt í kjölfar þess að ASÍ var búið að hvetja til þess - og samþykkja - að samningsbundnum hækkunum launa, ÞEIRRA LÆGST LAUNUÐU, yrði frestað!!

Ég minni á að rétt um mánuður - um 30 dagar af þeim 80 sem þú og þín ríkisstjórn ætluðuð ykkur til að koma hér öllu í lag - er eftir til kosninga!

Þjóðin bíður enn Jóhanna!  Heimsbyggðin bíður enn Jóhanna!

Enn og aftur óska ég þér velfarnaðar á þeirri braut sem þú lagðir út á í byrjun árs og enn sér ekki fyrir endann á.  Ég bíð enn eftir KRAFTAVERKUM!

Ég minni þig enn á orð þín Jóhanna:

"MINN TÍMI MUN KOMA" en þó kannski frekar á þá einföldu staðreynd að sá tími er hér og nú!!!

PS. ég veit að ég er óvæginn í því sem ég rita hér að ofan en málið er einfaldlega þannig að ég, líkt og margir aðrir þegnar þessa lands, hef varla efni á að bíða lengur, hvað þá að taka á mig frekari skuldbindingar til að bjarga "AUÐMÖNNUM" þessa lands, hvorki í formi hækkaðra skatta né lækkaðra launa til viðbótar við hækkanir allra vísitalna og lána í kjölfar þess!!!


mbl.is Hafnar flatri niðurfærslu skulda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldur Hermannsson

Vel mælt, en staðreyndin er bara sú að heilög Jóhanna hefur ekkert við sinn tíma að gera, gömul og arfavitlaus og veit ekkert hvað er að gerast í kringum hana. Þetta er mannlegur harmleikur, eins og einn kratakjáninn sagði um annan forðum daga.

Baldur Hermannsson, 28.3.2009 kl. 22:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband