6.7.2007 | 18:24
Sýnir þetta ekki...
...án þess að um verði villst að það BORGAR SIG ALDREI að hafa öll eggin í sömu körfunni. Nokkurra tugþúsunda tonna niðurskurður á þorskkvóta og við horfum upp á 1% minni hagvöxt, heilu byggðalögin úti á landi í uppnámi vegna ónógrar atvinnu o.s.frv.
Er ekki rétt að hætta þessum slökkviliðsaðgerðum í eitt skipti fyrir öll og fara að einbeita sér að forvörnum, með því að laða hingað erlent fé og fyrirtæki (frændur vorir Írar gátu það), til koma í veg fyrir þessa bruna í hagkerfinu?
Ég bara spyr.....
Bankarnir náttúrulega græða sem aldrei fyrr á því að færa til pappíra frá A til B!!
Skerðing á þorskkvóta gæti þýtt 1% minni hagvöxt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt 7.7.2007 kl. 12:27 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.