31.7.2007 | 10:51
Þá liggur...
...hann fyrir, þessi árlegi listi yfir þá sem hæst opinber gjöld greiða.
Nú þarf einhver talnaglöggur snillingur að setjast niður og reikna út hvað þetta þýðir í raunlaun þessara einstaklinga, m.v. forsendur fjármagnstekjuskatts annarsvegar og tekjuskatts hinsvegar. Svo að sjálfsögðu að bera niðurstöðurnar saman við fólkið, sem lægst launin þiggur - launin sem alls ekki er hægt að hækka því þá færi allt á hvolf í þjóðfélaginu í endalausri þenslu, verðbólgu og hvað þetta nú heitir allt saman.
Ég náði ekki inn á þennan lista þetta árið, frekar en önnur, en uni þó afar sáttur við sjálfan mig og tilveruna...
Hreiðar Már Sigurðsson gjaldahæstur í Reykjavík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:32 | Facebook
Athugasemdir
Það munaði engu - eða sama sem engu - hjá mér.
Markús frá Djúpalæk, 31.7.2007 kl. 12:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.