Dagar...

...fjögur, fimm, sex og sjö eru liðnir (þ.e. heil vika) og engin kraftaverk hafa enn átt sér stað. Gengi krónunnar er enn við sama heygarðshornið.  Stýrivextir hafa ekkert hreyfst.  Matvælaverð er enn í hæstu hæðum.  Vextir hafa lítið sem ekkert breyst (sjá neðar).  Enn er lítið eða ekkert að gerast í því að hjálpa heimilum landsins við að ná endum saman annað en eitthvað sem kallar á meiriháttar atbeina "fjármálasnillinga" í bönkunum - þeirra hinna sömu og komu okkur í allt þetta klúður í upphafi - eða dómstóla með skipan tilsjónarmanna à la gamla Sovét.  Tilsjónarmanna sem fylgjast með því að fjölskyldurnar, sem nauðbeygðar, verða að leita sér aðstoðar til að ná endum saman, séu nú ekki að eyða öllum umframpeningum sínum í neina vitleysu eftir að keisaranum hefur verið goldið það sem keisaranum ber.

Aðild okkar að "draumaklúbbnum" virðist eiga að geta fengið flýtimeðferð, einhverskonar, og við fáum að fara fram fyrir röðina.  Virkar svolítið 2007 að fá VIP meðferð í biðröð í "draumaklúbbinn".

Ljósið í myrkrinu (sbr. sjá neðar hér að ofan) er það að Landsbankinn tók upp á því að lækka hjá sér vexti sem ætti að skila sér að einhverju leyti til yfirskuldsettra heimila landsins þ.e.a.s. þeirra sem eru í viðskiptum við þann ríkisbankann!

Annars bara enn ein "Groundhog day" vika á landinu bláa og ekkert að gerast sem eykur fjölskyldum landins von.  Hvar er Jörundur?

Ég sem hélt að allt myndi springa út eins og gróður að vori strax við það eitt að við ákváðum að fara í aðildarviðræður við ESB - helvítis, heimski ég!!

Helvítis, fokking, fokk!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband