18.12.2007 | 20:40
Þetta er...
...yndislegt líf.
Í anda umburðarlyndis, fjölmenningar og allra annarra yndislegheitaorða, sem til eru í orðabókinni sé ég mér ekki annað fært en að vera glaður og mæli með því að allir þeir sem sjúkdómum eru haldnir fái að koma hingað til lands og njóta einnar bestu, ef ekki þeirrar albestu læknisþjónustu sem til er í veröldinni. Læknisþjónustu sem foreldrar okkar, ömmur okkar og afar, langömmur og langafar - o.s.frv. - hafa byggt upp í gegnum áratugi og aldir - en fá illa notið nú vegna lélegra kjara, örorkubóta og lífsskilyrða (á þó alls ekki við um alla). Á sama tíma mæli ég með því - og að sjálfsögðu í anda fyrstu setningar þessarar málsgreinar - að við Íslendingar borgum svo enn hærri komu- og þjónustugjöld fyrir allt saman...
Kom berklasmitaður til Íslands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.12.2007 | 22:28
Ja, hérna...
...hver er fréttin?
Þú brýtur lög og ert afgreidd(ur) í samræmi við lagabálka viðkomandi ríkis! Er það ekki bara eins og hlutirnir eiga að vera, í hverju ríki fyrir sig? Viljum við ekki, hér uppi á Landinu Bláa, að tekið sé - á "viðeigandi hátt" - á þeim sem gerast sekir um lögbrot hér? Okkar "viðeigandi háttur" er kannski bara allt annar en "viðeigandi háttur" annarra ríkja á þessari jörð!! Okkur ber því, í anda umburðarlyndis og fjölmenningar að sýna öðrum þjóðum, og þjóðarbrotum viðeigandi umburðarlyndi og virðingu með því að vera ekki að brjóta þau lög og reglur sem þær/þau setja þegnum sínum og þeim gestum sem þær/þau heimsækja.
Homeland Security var stofnað í kjölfar árásanna á "The World Trade Center" - tvíburabyggingarnar (eins og þær voru gjarnan kallaðar upp á íslensku). Nú veit ég ekki hvenær Erla Ósk fór til BNA, eftir 1995, þar til hún fékk "viðeigandi" móttökur, við heimsókn sína nú nýverið en það segir hinsvegar bara ekki neitt. Hverju ríki er jú í sjálfsvald sett, innan ákveðinna lágmarks marka, hvernig þau taka á þeim einstaklingum, sem þau skilgreina sem "glæpamenn" og "persona non grata".
Hvernig var jú tekið á móti "saklausum" meðlimum Vítisengla (Hells Angels) við komu þeirra hingað til lands fyrir ekki margt löngu? Þetta voru einstaklingar sem flestir - held ég - höfðu ekkert af sér brotið gagnvart íslenskum lögum (einhverjir hugsanlega gerst brotlegir í sínu heimalandi og kannski bara hingað komnir til að flýja ofsóknir yfirvalda heima fyrir!!!!!) og voru hingað komnir til að taka þátt í fagnaði og gleðskap hér á landi en var vísað öfugum frá landinu af því að þeir voru "persona non grata" á Íslandi. Var ekki mikill meirihluti þjóðarinnar meðfylgjandi þeirri ákvörðun? Spyr sá sem ekki veit.
Fangelsuð í Bandaríkjunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.12.2007 | 21:38
Blasphemare absens fides...
..."Hættur hinna trúlausu". Það er sú skoðun að náttúrunni hrylli við tómarúmi, jafnvel andlegu tómarúmi. Einstaklingar sem misst hafa trú sína, eru eins og tómar umbúðir, sem eru móttækilegri fyrir því að líf þeirra verði tekin yfir af öflum stærri en þeir sjálfir. Næstum eins og bölvun. Eða kraftaverk...
"Og hræðist eigi þá sem líkamann deyða, en geta eigi deytt sálina; en hræðist heldur þann, er mátt hefir til að tortíma bæði sálu og líkama í Gehenna." (Gehenna = helvíti) Matteus 10,28.
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 21:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.12.2007 | 16:30
Enn og aftur...
...bull og vitleysa. Hver trúir því eiginlega að herveldi sendi herflugvélar á loft, hvort sem það er til æfinga, eftirlits eða annars, án þess að þær séu búnar vopnum?? Hver væri þá tilgangurinn með því að hafa þær á lofti á annað borð?? Kannski þær séu búnar öflugum gjallarhornum sem flugmenn vélanna geta gripið til og sagt "óvinveittum" flugvélum að hypja sig í burtu annars verði allir voða voða reiðir.........
Það gildir nákvæmlega sama um herflugvélar og herskip sem eru á eftirlit, hvar sem það eftirlit fer fram. Um borð er flestallur sá búnaður sem þarf til að "afgreiða óvininn"!!! Ef einhver trúir einhverju öðru þá er það bara hans mál...
Flugvélar vopnaðar í eftirliti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.12.2007 | 10:58
Lækkum...
...flugið, í Kauphöllinni... Lokað á viðskipti með bréf í FL Group!!
Er það kannski að koma í ljós núna að virðisaukandi starfsemi fyrirtækjanna, sem stjórnað hefur verið af fjármálaspútnikunum, hafi í raun ekki verið jafn virðisaukandi og talnaleikirnir hafa gefið í skyn undanfarin misseri? Spyr sá sem ekki veit...
Mikil verðlækkun í Kauphöll | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.12.2007 | 11:16
Eru...
...fjármálaspútnikarnir farnir að falla til jarðar núna?
Bréf FL Group lækka um 4% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.11.2007 | 11:43
Það er...
Útsvar lækkað á Seltjarnarnesi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.11.2007 | 18:40
Ekki...
...rataðist kjöftugum satt orð á munn í þetta skiptið en gengur kannski betur næst.
Ég var þess reyndar eiginlega alveg fullviss að Björn Bjarnason myndi skipa Jón H. B. Snorrason sem ríkissaksóknara en upp úr þurru kemur allt í einu nýr umsækjandi fram á vígvöllinn. Sjálfur fangelsismálastjórinn og hreppir hnossið!!! Hvað er eiginlega í gangi? Hvernig má það vera að hægt sé að ganga þvert á plottið, sem ég var búinn að sjá fyrir mér og útlista hér á blogginu? Er ekki allt í lagi?
Nú þarf að fara að upphugsa eitthvað annað plot til að básúnast yfir, fyrst þetta gekk ekki eftir...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.11.2007 | 19:53
Gott blog...
...Óla Björns Kárasonar um stjórnmálaástandið í Reykjavík og hinn margumrædda REI - GGE samruna, sem hægt er að lesa hér:
http://businessreport.blog.is/blog/businessreport/entry/369353/
Ég verð að vera sammála Óla Birni að ég hef ekki alltaf (reynar sjaldnast) skilið þetta samruna / sameiningar / yfirtöku / íkaupaferli fjármálaspútnikanna hér á landi. Skil ekki hvernig allt getur orðið af litlu sem engu og eitthvað geti hækkað í verði með því að það kaupi hlut í sjálfu sér og borgi með hlutum í einhverju öðru, sem aftur hefur keypt hluti í sjálfu sér og einhverju öðru............
Ég er enda einn af kjósendum þessa lands, reyndar ekki í Reykjavík - og sem betur fer - en samt sem áður einn af þeim sem reynt hefur verið að hafa að fíflum síðan ég öðlaðist kosningarétt.
Jafnfeginn og Óli Björn að búa á Seltjarnarnesi!!!!!
Engin hlutabréf hækkuðu í Kauphöll Íslands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.11.2007 | 18:57
Jæja...
...þá liggur sá listinn fyrir, þ.e. hverjir sóttu um embætti ríkissaksóknara. Nú er bara að bíða og sjá hver hreppir hnossið.
Í pistli mínum þann 4 nóvember s.l. gerði ég því skóna að Björn Bjarnason myndi líklega skipa Jón H. B. Snorrason, aðstoðarlögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, í stöðuna, án þess þó að hafa um það nokkra hugmynd hvort hann yfir höfuð yrði einn umsækjenda. Nú er það þó orðið lýðum ljóst að hann er einn umsækjenda þ.a. aldrei að vita nema kjöftugum ratist satt orð á munn!!!
Við skulum sjá hvað setur...
Sex sækja um embætti ríkissaksóknara | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |