9.11.2008 | 22:13
Nýi...
...ég.
Ég hef ákveðið að skoða möguleikann á því að stofna nýjan mig hjá Hagstofu Íslands. Í kjölfarið á stofnun nýs míns mun ég yfirfæra allar eignir gamla mín yfir á nýja mig en skilja allar skuldirnar eftir á gamla mér því mér finnst óréttlátt að ég þurfi - nýr eða gamall - að borga skuldir annarra í formi gríðarlegra stýrivaxta, hrikalegrar verðbólgu, síhækkandi vöruverðs, minnkandi kaupmáttar, lélegra launa og svo mætti lengi telja.
Lesið www.vald.org
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Andra Snæ Magnason sem forsætisráðherra!
Ævar Rafn Kjartansson, 9.11.2008 kl. 22:33
Þú ert auðvitað snillingur!
Markús frá Djúpalæk, 9.11.2008 kl. 22:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.