19.3.2009 | 11:00
Þar kom...
...að því. Ísland er komið á lista með vanþróuðustu ríkjum veraldar. Ísland er komið á lista með ríkjum sem gengið hafa í gegnum blóðugar borgarastyrjaldir. Ísland er komið á lista með ríkjum hvar pólitísk spilling er hvað alvarlegust í veröldinni. Ísland er komið á lista með ríkjum sem stunda kosningasvindl í stórum stíl.
ÖSE fer, nánast undantekningarlaust, ekki til kosningaeftirlits nema ofangreindar ástæður liggi að baki. Þannig hefur kröftum stofnunarinnar ekki verið sóað í "svokölluð" lýðræðisríki þar sem talið hefur verið að pólitísk spilling þrifist illa eða ekki.
Það er þarna einnig í fréttinni afar athygliverður punktur á þá leið að íslenskar reglur um aðgang kosningaeftirlitsmanna séu ekki í samræmi við reglur ÖSE, frá 1990, um sama!!
Ég hripaði niður smá punkta um sama efni þann 25. febrúar s.l. en þá var frétt, á mbl.is, þess efnis að ÖSE væri að skoða þann möguleika að koma hingað í kosningaeftirlit. Bloggfærsluna má lesa hér. Nú er þessi "möguleiki" að verða að "veruleika".
Enn og aftur til hamingju Ísland!!
Eftirlitsmenn fari til Íslands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.