15.11.2009 | 13:09
Þingvilji vs. Þjóðarvilji
Það er með ólíkindum, á stundum, að hlusta á pólitíkusa "ræða" málin! Þannig fjallaði t.d. Sigmundur Ernir Arngrímsson, þingmaður Samfylkingarinnar, um "þingviljann" fyrir því að sækja um aðild að Evrópusambandinu í Silfri Egils, sunnudaginn 15. nóvember.
Í kjölfar slíkrar umfjöllunar kemst maður ekki hjá því að velta því fyrir sér hvað maður, sem þessi, er eiginlega að fara þegar hann talar um "þingvilja". Hvað er "þingvilji"? Í hvers umboði starfar þingið? Hvernig getur þingið haft einhvern annan vilja en þjóðin í hvers umboði það starfar?
Ég, einfaldur almúgamaðurinn, stóð í þeirri einföldu meiningu að þingið starfaði í umboði þjóðarinnar! Það er jú þjóðin sem sker úr um það, í kosningum, hverjir fá sæti á þingi! Það ætti því einfaldlega, að mínu mati, að vera einn vilji í landinu þ.e. þjóðarvilji!! Þjóðarviljinn, skv. skoðanakönnunum, er eindreginn! Þjóðin vill ekki inn í Evrópusambandið!!! Hvernig geta því þingmenn, á borð við Sigmund Erni, leyft sér það að ræða um þingvilja, eins og einhvern sjálfstæðan vilja sem þjóðinni komi ekki við?
Er hann kannski á sömu skoðun og Ingibjörg Sólrún að þjóðin sé í raun ekki þjóðin og viti því í raun ekkert hvað hún vill????
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.