Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Þyrnir...

...í augum stjórnvalda "Guðs eigins lands"!!  Þannig er einfaldast að lýsa Hugo Chaves.  Hann hefur þráfaldlega neitað að þýðast stjórnvöld í BNA og fyrir það hefur hann uppskorið "útskúfun" þeirra.  Eitthvað sem, ég held, að hann hafi nákvæmlega engar áhyggjur af enda hefur það sýnt sig í samskiptum hans við þau stjórnvöld og sömuleiðis í vinfengi hans við aldna byltingarleiðtoga þá Castro bræður á Kúbu t.d.

Það sem veldur manni hinsvegar meiri áhyggjum, hafandi fylgst með hernaðaruppbyggingu BNA í Kosovo (herstöðin Bond Steel í suðurhluta Kosovo sem byggð var af fyrirtæki Dick Chaney - Halliburton) er sú einfalda staðreynd, sem fram kemur í fréttinni að BNA muni senn fá afnot af herbækistöðvum í Kólumbíu.

Þeir sem ekki til þekkja eru hvattir til að kynna sér umsvif hers BNA í rómönsku Ameríku og hvernig þau hafa, í gegnum áratugi, rutt hinum ýmsu lýðræðislega kjörnum leiðtogum og stjórnum þeirra úr vegi til að koma fyrir "meira þóknanlegum" leiðtogum.

Lesið www.vald.org


mbl.is ,,Af hverju ekki skriðdreka?"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland er land þitt...!!!

Ísland er land þitt, og ávallt þú geymir
Ísland í huga þér, hvar sem þú ferð.
Ísland er landið sem ungan þig dreymir,
Ísland í vonanna birtu þú sérð,
Ísland í sumarsins algræna skrúði,
Ísland með blikandi norðljósa traf.
Ísland að feðranna afrekum hlúði,
Ísland er foldin, sem lífið þér gaf.

Íslensk er þjóðin sem arfinn þinn geymir
Íslensk er tunga þín skír eins og gull.
Íslensk er sú lind,sem um æðar þér streymir.
Íslensk er vonin, af bjartsýni full.
Íslensk er vornóttin, albjört sem dagur,
Íslensk er lundin með karlmennskuþor.
Íslensk er vísan, hinn íslenski bragur.
Íslensk er trúin á frelsisins vor.

Ísland er land þitt, því aldrei skal gleyma
Íslandi helgar þú krafta og starf
Íslenska þjóð, þér er ætlað að geyma
íslenska tungu, hinn dýrasta arf.
Ísland sé blessað um aldanna raðir,
íslenska moldin, er lífið þér gaf.
Ísland sé falið þér, eilífi faðir.
Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf.

- Magnús Þór Sigmundsson / Margrét Jónsdóttir

Það þarf ekki að hafa fleiri orð um þetta mál allt saman!!

Lesið www.vald.org


mbl.is Mun samþykkja ríkisábyrgðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fagnaðarerindið...

...à la "Guðs eigin land" í boði Hillary Clinton:

"Ó þið aumu almúgamenn, við munum nú koma til ykkar með öll okkar tól og tæki í boði Halliburton (http://www.halliburton.com/), Texaco (http://www.texaco.com/portal_default.asp) o.fl. slíkra bandarískra ofurfyrirtækja.  Við munum ekki færa ykkur neitt en taka frá ykkur allt, kærar þakkir".

PS - þið megið að sjálfsögðu ekki gá að því hver á öll þessi fyrirtæki, sem munu koma og "hjálpa ykkur" en flest þeirra eru að sjálfsögðu í eigu manna á borð við Dick Cheney, Donald Rumsfeld o.fl. stórnillinga og mannvina af bestu gerð.


mbl.is Clinton í Angóla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dagar...

...8 - 22 (að verða 23) eru liðnir (bráðum heill mánuður) og engin kraftaverk hafa enn átt sér stað þrátt fyrir umsókn okkar um aðildarviðræður við ESB.  Gengi krónunnar er enn við sama heygarðshornið.  Stýrivextir hafa ekkert hreyfst og fregnir bárust reyndar af því í dag að þeim yrði, mjög líklega, haldið óbreyttum í einum 12% fram á næsta ár.  Matvælaverð er enn í hæstu hæðum.  Vextir hafa lítið sem ekkert breyst (sjá neðar).  Enn er lítið eða ekkert að gerast í því að hjálpa heimilum landsins við að ná endum saman annað en eitthvað sem kallar á meiriháttar atbeina "fjármálasnillinga" í bönkunum - þeirra hinna sömu og komu okkur í allt þetta klúður í upphafi - eða dómstóla með skipan tilsjónarmanna à la gamla Sovét.  Tilsjónarmanna sem fylgjast með því að fjölskyldurnar, sem nauðbeygðar, verða að leita sér aðstoðar til að ná endum saman, séu nú ekki að eyða öllum umframpeningum sínum í neina vitleysu eftir að keisaranum hefur verið goldið það sem keisaranum ber.  Nú styttist hinsvegar í það að bankasnillingarnir fara að láta til sín taka í að bera fólk út úr húsum sínum með tilheyrandi neyð fyrir fjölmargar fjölskyldur landsins.

Aðild okkar að "draumaklúbbnum" virðist eiga að geta fengið flýtimeðferð, einhverskonar, og við fáum að fara fram fyrir röðina.  Virkar svolítið 2007 að fá VIP meðferð í biðröð í "draumaklúbbinn".

Ljósið í myrkrinu (sbr. sjá neðar hér að ofan) er það að Landsbankinn tók upp á því að lækka hjá sér vexti sem ætti að skila sér að einhverju leyti til yfirskuldsettra heimila landsins þ.e.a.s. þeirra sem eru í viðskiptum við þann ríkisbankann!

Annars bara enn heilmargir "Groundhog day" dagar á landinu bláa og ekkert að gerast sem eykur fjölskyldum landins von.  Hvar er Jörundur?

Ég sem hélt að allt myndi springa út eins og gróður að vori strax við það eitt að við ákváðum að fara í aðildarviðræður við ESB - helvítis, heimski ég!!

Helvítis, fokking, fokk!!

Lesið www.vald.org


Báknið...

...klikkar ekki frekar en fyrri daginn!

Það er að koma á daginn að það er í raun afar lítið og nánast ekkert verið að gera til að koma fjölskyldum í landinu til aðstoðar með eitt eða neitt í þessum efnum.  Fjölskyldum sem, langflestar, höfðu ekkert með það að gera hvernig komið er fyrir landi og þjóð í dag.  Fjölskyldum sem hafa bara verið að reyna að lifa af í afar hörðum heimi "fjáramálasnillinganna".  Heimi sem nú er hruninn og þessar sömu fjölskyldur eiga nú að súpa seyðið af og borga fyrir með "öllum afgangnum" af "risavöxnum" tekjum sínum.

Vandinn er vitaður og það er jafnframt vitað hverjir það eru sem eiga í vandræðum - venjulegar fjölskyldur í þessu landi!!! 

Fram hafa komið ýmsar leiðir til lausnar vandanum - t.d. "flöt" niðurfelling, endurútreikningur á vísitölum m.v. forsendur dagsins í dag, afturfærsla vísitalna einhver ár aftur í tímann o.fl, o.fl. - frá ýmsum aðilum og hagsmunasamtökum s.s. Hagsmunasamtökum heimilanna, Talsmanni neytenda, stjórnmálaflokkum o.fl.  "Norræna velferðarstjórnin" þverskallast hinsvegar við öllu saman og eyðir öllum sínum tíma og orku í koma okkur "þrælunum" í það að borga ICES(L)AVE, redda "fjármálasnillingunum" (sem komu okkur í þennan skít í upphafi og heimta nú að við borgum allt og rúmlega það) o.fl. í þeim dúr þ.a. hægt sé svo, á endanum, að hella öllu gumsinu inn í ESB!!

Er ekki eitthvað mikið að hjá okkur?

Lesið www.vald.org


mbl.is Þúsundir vilja greiðsluaðlögun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta...

...er sami bankinn og hefur verið og mun ganga hart eftir veðum og uppgjöri skulda almennings vegna íbúðarkaupa!!

Lesið www.vald.org


mbl.is Tók engin veð vegna lúxusíbúðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er...

...ótrúlegt að lesa fréttirnar af opinberunum úr lánabókum Kaupþings rétt fyrir hrunið og sjá yfirklórið hjá núverandi stjórnendum (ríkis)bankans vegna "lekans".  Var ekki eitt af yfirlýstum markmiðum núverandi ríkisstjórnar að stunda "opinbera" stjórnsýslu og "gegnsæi" í hvívetna?  Eru þessar fögru yfirlýsingar og fyrirheit bara orðin tóm og pólitískt "kjaftæði" til að þagga niður í óánægju röddum hverskonar?  Er þetta allt saman sama hjáróma mjálmið og viðhaft er þegar fjallað er um það að "bjarga" heimilum og fjölskyldum landsins frá þeim efnahagsþrenginum sem dunið hafa á okkur í kjölfar bankahrunsins? 

Að mínu viti, sem ég fúslega viðurkenni að er takmarkað á köflum, er ALLT sem réttlætir þennan leka þrátt fyrir ákvæði laga um þagnarskyldu o.fl. í þeim dúr!!  Hér er um að ræða hagsmuni almennings og  upplýsingar sem eiga erindi, ekki bara við íslenskan almenning heldur almenning veraldarinnar!!!  Svo einfalt er það nú bara í mínum huga.  Hér á við, það sem ég hef heyrt haft eftir Sigurði Líndal fyrrverandi lagaprófessor, þegar hann útskýrði hugtakið "Nauðsyn brýtur lög" á þann veg að nauðsyn gæti í raun aldrei brotið lög heldur "viki hún lögum til hliðar". 

Wikileaks, svo skemmtilega sem það fellur að íslenska heitinu að "víkja" einhverju til hliðar eða út af borðinu sbr. skilgreiningu Sigurðar, á hrós skilið fyrir að "standa uppi í hárinu" á þeim aðilum innan (ríkis)Kaupþings, sem hóta málssóknum vegna birtingar Wikileaks á áðurnefndum upplýsingum.  Heill sé þér Wikileaks!!  Heill sé þér Jay Lim fyrir einarða afstöðu þína!!  Heill sé þér "litli bankamaður" fyrir að "leka" upplýsingunum út í alþjóðasamfélagið, fyrir alþjóð að lesa!!

Lesið www.vald.org


mbl.is Segja trúnað gilda um upplýsingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki...

...verið að fokking grínast í okkur?

Ég var að lesa gamalt eintak af Mannlífi, n.t.t. frá 31. janúar 2008, í hverju er umfjöllun um Hafskipsmálið margfræga - kannski ekki svo gamalt eintak af Mannlífi en nógu gamalt þó til að vera fallið í gleymskunnar dá meðal alþýðu manna.  Sá kafli, sem vakti hvað mesta athygli mína hljóðar svo, og er neðst á bls. 65 í blaðinu undir millifyrirsögninni "MEIRA SVARTNÆTTI", "með leyfi forseta":

"Útrásin gekk ekki eins og áætlanir höfðu sýnt.  Gunnar Andersen vann á þessum tíma fyrir Hafskip í Bandaríkjunum og hann var ráðinn forstjóri Cosmos, [Cosmos = flutningamiðlunarfyrirtæki sem Hafskip hafði fest kaup á í Bandaríkjunum - innsk. blogghöfundar] bandaríska hluta Hafskips.  Í framhaldi voru opnaðar skrifstofur í Evrópu.  Þrátt fyrir allar væntingar gekk hvorki né rak og mikið tap varð á rekstri þessa hluta.  Umboðsskrifstofa Hafskips í Bandaríkjunum var líka í vanda.  Þar réð ríkjum gamall vinur Björgólfs, [Guðmundssonar, aðaleiganda Landsbankans - innsk. blogghöfundar] Baldvin Berndsen.  Ólag var á bókhaldi og gerðar voru athugasemdir við það."

Hvað skyldi nú vera svona merkilegt við þennan kafla úr þessari Mannlífsgrein að það fái mig til að spyrja hvort það sé ekki verið að fokking grínast í okkur?  Jú Gunnar þessi Andersen, sem minnst er á í Mannlífsgreininni er enginn annar en nýlega ráðinn forstjóri Fjármálaeftirlitsins íslenska (http://www.fme.is/?PageID=103)..........

"Helvítis, fokking, fokk!!!!"

Lesið www.vald.org


Mikið...

...svakalega hlýtur það að vera bæði gott og gaman að geta tekið þátt í því að setja reglur um það að geta sótt peninga, í vasa skattgreiðenda fyrir sjálfan sig, án þess að leggja fram eina einustu kvittun fyrir þeim peningum sem sóttir eru!!!

Það er hreint alveg með ólíkindum viðbjóðurinn sem viðgengst, á stundum, hjá þeim sem komast til nægilegra valda til að ákveða að einhver annar skuli greiða reikninginn!!

Maður - einfaldur íslenskur maður - hefði haldið, í ljósi þess sem á undan er gengið að slíkt yrði ekki liðið lengur en það er margt skrýtið í kýrhausnum hvort sem hann er við Austurvöll eða Westminster!!


mbl.is Of rausnarlegar greiðslur?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hún...

...var undarleg fréttin, sem ég las rétt áðan, á visir.is um ICES(L)AVE en í henni segir frá því að hollenski utanríkisráðherrann Maxime Verhagen hafi hringt í starfsbróður sinn á Íslandi Össur Skarphéðinsson s.l. þriðjudag (21. júlí væntanlega) og tjáð honum m.a. að:

"...Íslendingar verði að samþykkja Icesave samkomulagið, ellegar muni hollenska þingið beita sér gegn aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu."

Þessi texti að ofan er tekinn orðrétt úr fréttinni á visir.is en í henni kemur einnig fram að hollensk stjórnvöld hafi sett sig í samband við íslensk stjórnvöld til að lýsa yfir áhyggjum af frestun Alþingis á afgreiðslu ICES(L)AVE málsins. 

Ég verð nú að segja alveg eins og er að ég er furðu lostinn ef þetta er rétt og satt greint frá í fréttinni.  Hollensk stjórnvöld hafa, yfir höfuð, ekkert með það að gera að lýsa yfir áhyggjum af því að Alþingi Íslendinga, elsta löggjafarþing í veröldinni taki sinn tíma til að fara yfir einhvern þann ógeðslegasta kúgunarsamning sem erlend stjórnvöld hafa reynt að troða ofan í kokið á Íslendingum.  Samning, sem er tilkominn vegna stórfelldrar fjárglæfrastarfsemi nokkurra einstaklinga!  Samning, sem íslenska þjóðin er ekki að neinu leyti skuldbundin til að afgreiða á einn eða neinn hátt!

Þarna kemur einnig berlega í ljós að verið er að reyna að troða þessum samningi í gegnum Alþingi og það m.a.s. undir beinum hótunum!  "EF ÞIÐ EKKI SAMÞYKKIÐ ÞETTA MUNUÐ ÞIÐ ALDREI KOMAST INN Í DRAUMAKLÚBBINN (ESB)!!!"

Hafandi lesið lögin um innstæðutryggingar, sem og frumvarpið, sem lagt var fram á sínum tíma, sem og umræðurnar um herlegheitin í þinginu þegar þetta var allt saman lagt fram, en allt þetta má lesa á vef Alþingis að sjálfsögðu, finnst mér alveg með ólíkindum að stjórnvöld hafi yfirleitt farið út í þá vinnu að semja um nokkurn skapaðan hlut við Breta og Hollendinga!  Sér í lagi þegar horft er til þess að hér var um einkafyrirtæki að ræða (Landsbankann) sem rakaði að sér sparifé fólks, sem lét glepjast með gylliboðum um einhvera útópíuvexti.  Hvað varð svo um peningana veit nú enginn en eigendur og stjórnendur Landsbankans sitja enn á sínu einn m.a. í Bretlandi!!  Það væri nú nærtækara fyrir Bretana að sækja hann og yfirheyra um hans þátt í hlutunum frá upphafi til enda!

Hafandi lesið lögin um innstæðutryggingasjóðinn bloggaði ég eilítið, sem lesa má hér.

Að síðustu og að sjálfsögðu bendi ég fólki enn og aftur á að lesa www.vald.org


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband